Tämä sivu on käännetty automaattisesti.
Osa sisällöstä ei välttämättä ole täysin tarkkaa ohjelmistorajoitusten ja kielten välisen kääntämisen monimutkaisuuden vuoksi.

Tími til að tengja við Þorlák

Skálholt, 806 Selfoss, Islanti
Show on the map
24 September 2024
Overview

Í tilefni Menningarminjadaga Evrópu, sem að þessu sinni eru helgaðir „leiðum, samskiptum og tengingum“, er boðið til samveru í Skálholti á þriðjudaginn 24. september sem hefst kl. 17:00. Fjallað verður um leiðir pílagríma á miðöldum í Skálholti og um samskipti og tengingar á staðnum þar sem Þorláksmessa að sumri, 20. júlí, verður í öndvegi. Þá kom múgur og margmenni saman í Skálholti og minntist Þorláks helga.  Helgi Þorláksson mun gera efninu nokkur skil í spjalli innan húss og vænst er umræðna. Áður verður litið inn í Þorláksbúð og síðan gengið um staðinn og bent á kennileiti sem bera nafn Þorláks. Safnast verður saman við kirkjutröppurnar. Verið öll hjartanlega velkomin!

Osoite
Skálholt, 806 Selfoss, Islanti

64.12531265, -20.524143044482

Enter an address like "Chicago, IL".