Aistríodh an leathanach seo go huathoibríoch.
D'fhéadfadh sé nach mbeadh cuid den ábhar go hiomlán cruinn de bharr theorainneacha na mbogearraí agus castachtaí an aistriúcháin idir teangacha.

Vörðubrot og blásnar götur - málstofa um fornar ferðaleiðir tengdar klaustrinu á Skriðu

Skriðuklaustur, 701 Egilsstaðir, an Íoslainn
Show on the map
15 September 2024
Overview

Í tilefni Menningarminjadaga Evrópu, sem hafa „leiðir, samskipti og tengingar“ sem tema þetta árið, boðar Gunnarsstofnun til lítillar málstofu á Skriðuklaustri um fornar ferðaleiðir til og frá Fljótsdal sem tengjast klaustrinu á Skriðu sem starfrækt var á 16. öld. Steinunn Kristjánsdóttir, doktor í fornleifafræði og stjórnandi fornleifarannsóknarinnar á Skriðuklaustri, mun segja frá sínum rannsóknum á þessum leiðum sem hún fjallaði m.a. um í bók sinni Sagan um klaustrið á Skriðu. Skúli Björn Gunnarsson mun segja frá leiðöngrum sem hann hefur farið til að staðsetja bæði leiðina suður yfir Vatnajökul til verstöðvarinnar Hálsahafnar í Suðursveit og verslunarstaðarins Gautavíkur í Berufirði. Gestum mun gefast kostur á að skoða þessar tvær leiðir að hluta til í sýndarveruleikagleraugum. Öll velkomin og vonast er eftir frjórri umræðu um ferðaleiðir sem tengdu byggðir til forna og hvernig við getum varðveitt minjar og upplýsingar um þær. Málstofunni verður streymt á Youtube rás Skriðuklausturs: Skriduklaustur - YouTube

Seoladh
Skriðuklaustur, 701 Egilsstaðir, an Íoslainn

65.0409385, -14.9530877

Enter an address like "Chicago, IL".